Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. mars 2017 var lögð fram fyrirspurn Baldurs Hrafns Vilmundarsonar, mótt. 6. febrúar 2017, um rekstur gististaðar í flokki II í húsinu á lóð nr. 3B við Brattagötu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 15. mars 2017.