Á fundi skipulagsfulltrúa 11. júlí 2014 var lögð fram fyrirspurn
Mænis Reykjavík ehf.
dags. 27. júní 2014 um deiliskipulag og heimilaða uppbyggingu á lóðinni nr. 4 við Suðurlandsbraut. Einnig er lagður fram uppdr. arkitektur.is dags. 21. janúar 2007. Fyrirspurninni var frestað og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. september 2014.