Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn
Sei ehf.
dags. 2. febrúar 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Grjótaþorps vegna lóðarinnar 5 við Grjótagötu. Í breytingunni felst breyting á byggingarreit og nýtingarhlutfalli lóðarinnar auk þess að heimilt verði að byggja við húsið til vestur sem nemur núverandi viðbyggingu, samkvæmt uppdr.
Sei ehf.
dags. 18. mars 2021. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 29. janúar 2021. Tillagan var grenndarkynnt frá 7. apríl 2021 til og með 6. maí 2021. Engar athugasemdir bárust.