Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs varðandi breytingu á deiliskipulagi Nauthólsvíkur. Í breytingunni felst að ákvæði um stríðsminjasafn er fellt niður en í stað þess verði ákvæði um að húsin verði fyrir veitingarekstur eða aðra starfsemi og þjónustu sem fellur að nýtingu útivistarsvæði og starfsemi í Nauthólsvík, samkvæmt uppdr. Landmótunar dags. 10. apríl 2013. Tillagan var auglýst frá 29. maí til og með 4. júlí 2013. Engar athugasemdir bárust.