Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. júní 2017 var lögð fram fyrirspurn Arnars Hannesar Gestssonar, mótt. 27. júní 2017, um niðurrif og stækkun byggingarreits fyrir flutningshús á lóð nr. 30B við Laugaveg skv. uppdr. Hildar Bjarnadóttur, dags. 1. apríl 2017. Umsögn Minjastonfunar dags. 14. júní 2017 lögð fram. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. ágúst 2017.