Lagt fram erindi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar dags. 18. nóvember 2019 þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa vegna umsóknar um starfsleyfi fyrir Málmaendurvinnsluna ehf. að Stangarhyl 7, í kjallara, norðaustan megin í húsinu. Starfsemin felst í móttöku á málmum sem eru flokkaðir og fluttir úr landi til endurvinnslu.