Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 13. maí 2016 var lögð fram fyrirspurn Kjartans Hafsteins Rafnssonar f.h. Borgarþvottahússins ehf., mótt. 28. apríl 2016, um að gera bílastæði fyrir rafmagnsbíl á lóð nr. 4 við Mjölnisholt ásamt hleðslustöð í bakgarði, samkvæmt uppdr. K.J. hönnunar ehf., dags. 25. apríl 2016. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 20. maí 2016.