Lögð fram umsókn Kjartans Hafsteins Rafnssonar f.h. Arctic Tours ehf. dags. 23. janúar 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hampiðjureits vegna lóðanna nr. 4, 6, 8 og 10 við Mjölnisholt. Í breytingunni felst að hækka húsin um 46-60 cm, sameina lóðirnar nr. 6 og 8 og byggja sameiginlegan stigagang/lyftuhús, gera niðurgrafna bílgeymslu á lóðunum nr. 6, 8 og 10, útbúa bílastæði fyrir rafmagnsbíl í bakgarði lóðar nr. 4 og geymsluskúr á baklóð lóðar nr. 6, samkvæmt uppdr. K.J. hönnunar ehf. dags. 19. janúar 2018.