Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Davíðs Kr. Pitt ark. dags. 12. október 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.161 vegna lóðarinnar nr. 22 við Suðurgötu. Í breytingunni felst að stækka byggingarreit á baklóð (vesturhlið) ásamt aukningu á byggingarmagni og breytingu á nýtingarhlutfalli lóðar, samkvæmt uppdr. Davíðs Kr. Pitt ark. dags. 12. desember 2020. Tillagan var grenndarkynnt frá 14. janúar 2021 til og með 11. febrúar 2021. Engar athugasemdir bárust.