Aðflugsljós við enda flugbrautar 13
Flugvöllur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 800
4. desember, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, að breytingu á deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar. Í breytingunni felst staðsetning á nýju hliði, breytt afmörkun girðingar og breyting á deiliskipulagsmörkun til samræmis við deiliskipulag Nýja Skerjafjarðar, samkvæmt uppdr. T.ark Arkitekta ehf. dags. 26. júní 2020 br. 30. nóvember 2020. Tillagan var auglýst frá 16. september 2020 til og með 28. október 2020. Engar athugasemdir bárust. Einnig er lagður fram tölvupóstur Isavia dags. 11. nóvember 2020 þar sem ekki er gerð athugasemd við breytinguna.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

Landnúmer: 106746 → skrá.is
Hnitnúmer: 10089795