Lögð fram umsókn Hnits verkfræðistofu hf. dags. 18. nóvember 2021 um framkvæmdaleyfi fyrir gerð prufuhola við enda flugbrautar á Reykjavíkurflugvelli við Fossvog vegna jarðvegsrannsókna í tengslum við Borgarlínuna. Einnig er lögð fram greinargerð dags. 5. nóvember 2021, mynd sem sýnir afstöðu prufuhola og tillaga sem sýnir fyrirhugaða merkingu vinnusvæða dags. í maí 2021.