Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. janúar 2022 var lögð fram umsókn THG Arkitekta ehf. dags. 5. janúar 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Ártúnshöfða eystri vegna lóðarinnar nr. 7. við Höfðabakka. Í breytingunni felst hækkun á mæni bakhúss um 2,5 m og við það skapast möguleiki á milligólfi. Við breytinguna hækkar nýtingarhlutfall lóðar úr 0,7 í 1,0 ásamt því að bílastæðakröfur eru uppfærðar í samræmi við bíla- og hjólastæðastefnu Reykjavíkurborgar, samkvæmt uppdr. THG Arkitekta ehf. dags. 4. janúar 2022. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.