Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Áfengis-/tóbaksverslunar ríkisins dags. 12. ágúst 2020, varðandi breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna Stuðlaháls 2. Í breytingunni felst að gerður er nýr byggingarreitur að stærð ca. 10 x15 m á suðurhluta lóðar, samkvæmt uppdr. Karls-Eriks Rockén arkitekts dags. 24. ágúst 2020. Tillagan var grenndarkynnt frá 7. september 2020 til og með 5. október 2020. Engar athugasemdir bárust.