Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. mars 2018 var lögð fram umsókn Helga Mars Hallgrímssonar f.h. Skugga 4 ehf. varðandi breytingu á deiliskipulagi RÚV reits. Í breytingunni felst breytingar á lóðum fyrir djúpgáma umhverfis lóðir A og B, djúpgámalóðum er fækkað, lóðir færðar til og ein djúpgámalóð er stækkuð, lóðir H og I eru fjarlægðar og breytist landsvæði þeirra í borgarland og lóð F stækkar, samkvæmt uppdr. Arkþings ehf. dags. 8. mars 2018. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.