Lögð fram umsókn Helga Mars Hallgrímssonar f.h. Skugga 4 ehf. varðandi breytingu á deiliskipulagi RÚV reits. Í breytingunni felst breytt staðsetning djúpgámalóða, fækkun um eina lóð, samkvæmt uppdr. Arkþings ehf. dags. 22. febrúar 2018.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.