Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. nóvember 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt fjölbýlishús, einangrað að utan og klætt zinki, timburklæðningu og virocplötum, 6 hæðir og inndregin 7. hæð með 21 íbúð, skrifstofuhúsnæði á 1. hæð og bílgeymslu í kjallara fyrir 23 bíla á lóð nr. 28 við Borgartún. Stærð A-rými: 3.581,4 ferm., 10.798,2 rúmm. B-rými: 192,5 ferm., xx rúmm. C-rými: 202 ferm. Gjald kr. 9.823