Lögð fram umsókn Karvels Ögmundssonar dags. 21. desember 2019 ásamt tölvupósti dags. 13. febrúar 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Grandavegar, Lýsis og S.Í.S vegna lóðarinnar nr. 37 við Grandaveg. Í breytingunni felst að rafmagnskassi/tengikassi Veitna verði fjarlægður á kostnað borgarinnar og að koma megi fyrir tveimur bílastæðum á lóðinni þar af eitt bílastæði fyrir hreyfihamlaða, sbr. tölvupósti dags. 12. febrúar 2020.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.