Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. júní 2017 var lögð fram fyrirspurn Erlu Stefánsdóttur, mótt. 10. júní 2017, ásamt bréfi, dags. 31. maí 2017, um að byggja ofan á viðbyggingu á lóð nr. 30 við Leifsgötu, samkvæmt uppdr. Rýma arkitekta, dags. 20. mars 2015. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skiplagsfulltrúa, dags. 11. ágúst 2017.