Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. maí 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. maí 2018 þar sem sótt er um leyfi til að opna veitingastað í flokki III tegund F fyrir 130 gesti á 1. hæð og í kjallara í húsi á lóð nr. 33 við Hverfisgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. maí 2018.
Gjald kr.11.000