Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. janúar 2012 þar sem sótt er um leyfi til þess að koma fyrir svölum og flóttaleið á vesturhlið annarrar hæðar, síkka glugga á vestur- og suðurhlið, breyta innra fyrirkomulagi og endurinnrétta veitingastað á annarri hæð hússins á lóðinni nr. 20B við Laugaveg.Um er að ræða veitingastað í flokki II. Gjald kr. 8.500