Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. mars 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að vera með útiveitingar fyrir 20 gesti á baklóð veitingastaðar í flokki ll, teg. f, krá, fyrir samtals 114 gesti á 1. hæð verslunar- og þjónustuhúss á lóð nr. 22B við Laugaveg. Erindi fylgir umboð eiganda dags 3. mars 2021 sem gildir til 1. apríl 2021, og samþykki lóðarhafa Laugavegi 20A og Klapparstíg 38. Gjald kr. 12.100