(fsp) stækkun húss
Laugavegur 20B
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 814
26. mars, 2021
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Páls V. Bjarnasonar dags. 24. mars 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.171.5, Laugavegs- og Skólavörðustígsreitir, vegna lóðarinnar nr. 20B við Laugaveg. Í breytingunni felst að heimilt verði að gera einnar hæðar viðbyggingu á bakhlið hússins með þaksvölum auk þess að gera inndregna þakhæð, tengibyggingu á millibyggingu milli hornhúss og risshúss, með kvisti til suðurs úr mænisþaki sem veitir aðgang að þaksvölum sem verða yfir endahúsinu. Við breytinguna hækkar nýtingarhlutfall lóðar, samkvæmt uppdr. P ARK teiknistofu sf. dags. 22. mars 2019, br. 20. febrúar 2020. Einnig eru lagðar fram umsagnir Minjastofnunar Íslands dags. 12. nóvember 2018 og 25. mars 2019 og umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 5. desember 2018.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.