Lögð fram umsókn Sigurðar Halldórssonar f.h. Tryggvagötu ehf., mótt. 3. mars 2016, varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulagi reits 1.132.1, Naustareits, vegna lóðarinnar nr. 14 við Tryggvagötu. Í breytingunni felst að gerð er krafa um eitt bílastæði á hverja 130 m2 A rýma fyrir atvinnustarfssemi. verði ekki unnt að koma fyrir á lóðinni þeim fjölda bílastæða sem kröfur eru gerðar um skal heimilt að greiða fyrir þau stæði sem á vantar, samkvæmt tillögu Glámu/Kím ehf., dags. 2. mars 2016.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.