Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. október 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. október 2016 þar sem spurt er hvort skipta megi íbúð 0101 í tvær íbúðir í húsi á lóð nr. 161 við Laugaveg. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags.28. október 2016.