Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. apríl 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. apríl 2022 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta bílskúr í tómstundarými fyrir íbúð 0101, stækka íbúð 0102 með því að opna inn í óútgrafið rými og gera viðbyggingu til suðurs, með herbergi og geymslu á neðri hæð, á efri hæð er dagstofa stækkuð og bætt við þaksvölum á tvíbýlishús, einnig er bætt við einu bílastæði á lóð nr. 89 við Logafold. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. apríl 2022.