Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Reginn atvinnuhúsnæðis ehf. dags. 27. febrúar 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vatnagarða 4-24 vegna lóðarinnar nr. 8 við Vatnagarða. Í breytingunni felst að gera nýjan byggingarreit fyrir dreifistöð rafmagns, samkvæmt uppdr. Plúsarkitekta ehf. dags. 26. febrúar 2015. Tillagan var grenndarkynnt frá 20. mars til og með 17. apríl 2015. Engar athugasemdir bárust.