Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 19. ágúst 2016 var lögð fram fyrirspurn Ólafs Theodórs Ólafssonar, mótt. 30. júní 2016, varðandi flutning á núverandi timburhúsi sem byggt var 1905 ásamt auknu byggingarmagni á lóð nr. 10 við Klapparstíg, skv. uppdrætti Otium, ódags. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.