Lögð fram umsókn Ólafs Theodórs Ólafssonar, dags. 30. júní 2017 um breyting á deiliskipulagi Stjórnarráðsreits vegna lóðar nr. 10 við Klapparstíg skv. uppdrætti Otium. ódags. Einnig lögð fram greinargerð umsækjanda, dags. 30. júní 2017. Breytingin gengur út á flutning á núverandi timburhúsi, aukningu á nýtingarhlutfalli og byggingu fjölbýlishúss á lóðinni.
Svar
Vísað til umsagnar verkefnisstjóra. Vakin er athygli umsækjanda á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.