Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. mars 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja viðbyggingu, mhl.02, til suðausturs við núverandi hús, mhl.01, 4-hæða fjölbýlishús með 35 íbúðum, geymslum í kjallara og verslunar- og þjónusturýmum á jarðhæð á lóð nr. 60 við Snorrabraut. Stækkun: 3.781,6 ferm., 13.178,5 rúmm. Erindi fylgir lóðauppdráttur 1.193.4 dags. 10. september 2019, hæðablað teiknað í nóvember 2020, skýrsla verkfræðistofunnar Örugg um brunahönnun dags. 2. mars 2021 og ódagsett tafla yfir útreiknað leiðnitap byggingarhluta. Gjald kr. 12.100