Viðbygging - Blóðbankinn
Snorrabraut 60
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 823
4. júní, 2021
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. maí 2021 var lagt fram erindi þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja viðbyggingu, mhl.02, til suðausturs við núverandi hús, mhl.01, 4-hæða fjölbýlishús með 35 íbúðum, geymslum í kjallara og verslunar- og þjónusturýmum á jarðhæð á lóð nr. 60 við Snorrabraut. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Stækkun: 3.781,6 ferm., 13.178,5 rúmm. Erindi fylgir lóðauppdráttur 1.193.4 dags. 10. september 2019, hæðablað teiknað í nóvember 2020, skýrsla verkfræðistofunnar Örugg um brunahönnun dags. 2. mars 2021 og ódagsett tafla yfir útreiknað leiðnitap byggingarhluta. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. apríl 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. apríl 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 12. apríl 2021. Gjald kr. 12.100
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.