Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 31. maí 2022 þar sem sótt er um leyfi til þess að fækka bílastæðum um tvö og stækka til norðvesturs með viðbyggingu á einni hæð, og koma fyrir móttöku, vörumóttöku, vörulager, hjóla- og sorpgeymslu fyrir rannsóknarstofur Blóðbankans í húsi, mhl.01, á lóð nr. 60 við Snorrabraut.