Viðbygging - Blóðbankinn
Snorrabraut 60
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 717
22. febrúar, 2019
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Helgu Bragadóttur f.h. Snorrahús ehf. dags. 6. febrúar 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Heilsuverndarreits vegna lóðarinnar nr. 60 við Snorrabraut. Í breytingunni felst hækkun og stækkun á viðbyggingu hússins, breyting á lóðarmörkum, breyting á bílastæðum o.fl., samkvæmt uppdr. Kanon arkitekta ehf. dags. 5. febrúar 2018 uppf. 30. ágúst 2018. Einnig eru lagðir fram minnispunktar Glámu Kím af fundi 9. mars 2018 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. júlí 2018. Erindi er lagt fram að nýju ásamt deiliskipulags- og skuggavarpsuppdrætti dags. 4. október 2018. Tillagan var auglýst frá 23. nóvember 2018 til og með 7. janúar 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Snorrabúð ehf og Feld verkstæði ehf. dags. 3. janúar 2018. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. janúar 2019 og er nú lagt fram að nýju. Einnig er lagt fram samþykki Snorrabúðar ehf og Feld verkst. dags. 24. janúar 2019 .
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs