Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. október 2017 var lögð fram fyrirspurn
Kanon arkitekta ehf.
mótt. 23. október 2017 ásamt greinargerð dags. 20. október 2017 um uppbyggingu á lóð nr. 60 við Snorrabraut og bílastæðalóð sem er að hálfu í eigu Snorrabrautar 60 og Reykjavíkurborgar (Droplaugarstaðir), samkvæmt tillögu
Kanon arkitekta ehf.
, dags. 16. maí 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. nóvember 2017.