Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 13. febrúar 2015 var lögð fram fyrirspurn Þórarins Eggertssonar dags. 11. febrúar 2015 um að breyta veitingastað á jarðhæð hússins á lóð nr. 1 við Laugarásveg í tvær íbúðir. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. febrúar 2015.