Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 9. desember 2011 var lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra dags. 6. desember 2011 ásamt bréfi Lex lögmannsstofu dags. 25. nóvember 2011 varðandi viðbyggingu við húsið á lóðinni nr. 13 við Bergstaðastræti. Erindinu var vísað til umsagnar hjá lögfræði og stjórnsýslu og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn lögfræði og stjórnsýslu dags. 12. desmeber 2011.