Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. mars 2013 .þar sem sótt er um samþykki fyrir breytingum á innra skipulagi og útliti sem orðið hafa á byggingartíma, sjá erindi BN040897. Á 1. hæð er innréttað íbúðarherbergi og geymslur íbúða á efri hæðum, hurð úr stigahúsi í garð er felld niður, klæðningu breytt úr flísum í múrkerfi og svalahandriðum úr stáli í timbur á fjölbýlishúsi á lóð nr. 13 við Bergstaðastræti. Gjald kr. 9.000