Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. september 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. september 2017 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í fl. II, tegund a fyrir 60 gesti í austurhluta kjallara og 1. hæðar, koma fyrir eldhúsi í kjallara með vörumóttöku og koma fyrir hurðum inn í kjallara á norðurhlið húss á lóð nr. 77 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 20. september 2017.
Gjald kr. 11.000