Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. febrúar 2013 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðu útisvæði framan við veitingahús í flokki III á lóð nr. 4 við Vegamótastíg. Gjald kr. 8.500
Svar
Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.