Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 23. október 2020 var lögð fram fyrirspurn Lárusar Kristins Ragnarssonar dags. 14. október 2020 um breytingu á notkun hússins á lóð nr. 18 við Þverholt úr vöru- og skrifstofuhúsnæði í íbúðarhúsnæði og vinnustofur, samkvæmt uppdráttum/frumtillögu
Ártúns ehf.
dags. 12. október 2020. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. október 2020.