Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 3. júlí 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. júní 2015 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðri snyrtistofu í rými 0202, einnig er sótt um leyfi til að koma fyrir flóttasvölum á bakhlið, breyta gluggum við innhorn milli vestur og norðurálmu og gera skyggni á götuhlið að flóttasvölum með því að koma fyrir handriði þar á verslunarhúsi á lóð nr. 58 - 60 við Háaleitisbraut. Samþykki frá húsfélagsfundi dags. 9. júlí 2012 fylgir erindi. Gjald kr. 9.823