Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. mars 2018 var lögð fram fyrirspurn
Landmótunar sf.
dags. 8. mars 2018 ásamt minnisblaði ódags. um breytingu á deiliskipulagi Öskjuhlíðar sem felst í að gerður er byggingarreitur fyrir nýja byggingu norðvestan við lokahús, samkvæmt uppdr.
Landmótunar sf.
dags. 28. febrúar 2018. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 12. apríl 2018.