Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. desember 2016 var lögð fram umsókn Teiknistofunnar Óðinstorgi HH ehf., mótt. 25. nóvember 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Skógarhlíðar vegna lóðarinnar nr. 20 við Skógarhlíð. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit hússins til vesturs, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Óðinstorgi HH ehf., dags. 22. nóvember 2016. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.