Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. janúar 2017 var lögð fram fyrirspurn Stofnunar múslima á Íslandi ses., mótt. 5. janúar 2017, varðandi rekstur gististaðar á 1. hæð hússins á lóð nr. 20 við Skógarhlíð. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 2. febrúar 2017.