Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. janúar 2021 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta 4 íbúðir, endurbyggja tröppur á norðausturhlið, og setja opnanlega glugga og svalir á á 2. hæð Þóroddsstaða, iðnaðar- og sambýlishúss á lóð nr. 22 við Skógarhlíð. Erindi fylgir greinargerð frá hönnuði dags. 26. nóvember 2020 umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur, vegna breytinga á deiliskipulagi, dags. 28. mars 2017, bréf frá hönnuði dags. 26. nóvember 2020 og tölvupóstur Minjastofnunar dags. 10. nóvember 2020. Gjald kr. 11.200