Lögð fram umsókn
Hornsteina arkitekta ehf.
, mótt. 1. desember 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Skógarhlíðar vegna lóðarinnar nr. 22 við Skógarhlíð. Í breytingunni felst að heimilt verði að byggja allt að 22 íbúðir auk þess sem gert er ráð fyrir allt að 6 íbúðum í núverandi húsi (Þóroddsstöðum), samkvæmt uppdr.
Hornsteina arkitekta ehf.
, dags. í mars 2017. Einnig er lögð fram drög að greinargerð, ódags., umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur, dags. 28. mars 2017, og umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 8. maí 2017.