Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. mars 2021 var lögð fram fyrirspurn Jóns Ágústs Hreinssonar dags. 1. mars 2021 um að koma fyrir ca. 12 fm gróðurhúsi tímabundið á núverandi útisvæði lóðarinnar nr. 21 við Laugaveg. Einnig er lögð fram yfirlitsmynd. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og lagt fram að nýju.