Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 17. janúar 2014 var lögð fram fyrirspurn Róshildar Jónsdóttur dags. 16. janúar 2014 um að byggja neðanjarðar vinnustofu norðan við húsið á lóðinni nr. 51 við Grettisgötu ásamt viðbyggingu á einni hæð fyrir stigahús og vinnustofu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. janúar 2014.