Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. október 2022 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN060954, þ.e. við suðurgafl er bætt við flóttastiga og útveggir klæddir álklæðningu, viðbyggingu ásamt lyftuhúsi á austurhlið og endurnýjun glugga í matshluta nr. 02 í húsi nr. 6 á lóð nr. 4-6 við Ármúla.
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Ármúla 2, 8 og 8A. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022.