Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 14. desember 2017 þar sem ekki er gerð athugasemd við að sveitarstjórn birti auglýsingu um samþykkt deiliskipulagsbreytingarinnar í B-deild Stjórnartíðinda en bendir á að yfirfara þarf útreikninga byggingarmagns sem tilgreint er í greinargerð. Senda þarf Skipulagsstofnun lagfærð gögn til vörslu ef útreikningar sýna að lagfæringa er þörf.