Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Páls V. Bjarnasonar dags. 23. febrúar 2018 um að staðsetja tvo djúpgáma fyrir utan lóðina nr. 18 við Hafnarstræti við eldvarnarvegg Lækjartorgs 1 í stað núverandi sorpskúrs, samkvæmt tillögu P ARK teiknistofu sf. dags. 22. febrúar 2018. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. mars 2018.